Af hverju golf performance?
Ég fór „all in“ aftur í golfið eftir að hafa klárað nám, stofnað fjölskyldu og sinnt öðrum áhugamálum í tvo áratugi og sá að það eru mörg tækfæri til að bæta golfið landans með því að efla líkamlega þáttinn. Ég stofnaði Skúli Golf Performance með eitt markmið í huga – að hjálpa kylfingum að spila betur, hreyfa sig betur og njóta golfsins lengur. Með bakgrunn í sjúkraþjálfun, styrktarþjálfun og golfi sameina ég golfhreyfigreiningu, meðferð og markvissa þjálfun svo þú getir aukið kylfuhraða, bætt hreyfigæði og dregið úr meiðslum.
Í dag starfa ég í nánu samstarfi við Golfstöðina þar sem markmiðið er að tengja saman sjúkraþjálfun, styrktarþjálfun og golfþjálfun á einum stað. Þannig geta kylfingar fengið heildstæða þjónustu sem styður bæði heilsu og frammistöðu.