Prógrömm
Mitt svæði
GULLAÐILD
Fáðu aðgang að öllu prógrammasafni Skúli Golf Performance og veldu rétta áherslu eftir stöðu, markmiðum og golftímabili.
ALLT PRÓGRAMMASAFNIÐ
á mánuði
Greitt mánaðarlega
AF HVERJU GULLAÐILD?
Þú þarft ekki sama prógrammið allt árið. Markmið, golftímabil og staða líkamans breytast — og þjálfunin þarf að geta fylgt því.
01
Byrjaðu á styrk, færðu þig yfir í afl og kylfuhraða og notaðu viðhald þegar golftímabilið stendur sem hæst.
02
Skiptu um prógramm þegar markmiðin breytast. Gullaðild fylgir þér allt árið.
03
Ný prógrömm og uppfærslur bætast sjálfkrafa við meðan aðildin er virk.
ALLT GOLFÁRIÐ
Markmið, golftímabil og staða líkamans breytast yfir árið. Með Gullaðild skiptir þú einfaldlega um áherslu þegar rétti tíminn er kominn.
SKREF 1
Byggðu upp grunnstyrk, hreyfigetu og stöðugleika áður en þú ferð í meiri kraft.
SKREF 2
Breyttu styrknum í meiri kraft og undirbúðu líkamann fyrir hraðari sveiflu.
SKREF 3
Nýttu kraftinn til að auka sveifluhraða og lengd af teig.
SKREF 4
Viðhaltu styrk og hraða með minni tíma þegar golftímabilið stendur sem hæst.
Þegar þú ert tilbúinn fyrir næsta prógramm skiptirðu einfaldlega um áherslu. Engin ný kaup. Engin bið.
ALLT INNIFALIÐ
Með Gullaðild færðu aðgang að öllum núverandi prógrömmum, öllum sérútgáfum og nýju efni sem bætist við safnið á meðan aðildin er virk.
GOLF PERFORMANCE KERFIÐ
Byggðu þig markvisst upp frá grunnstyrk yfir í kraft, kylfuhraða og viðhald.
HEIMAÞJÁLFUN
Sex mánaða stigvaxandi leið fyrir kylfinga sem vilja æfa heima eða hafa takmarkaðan aðgang að líkamsrækt.
60+ KYLFINGAR
Sama markvissa kerfi með æfingum, álagi og framvindu aðlöguðu að þörfum eldri kylfinga.
FYRIR REYNDARI
Fyrir kylfinga sem hafa lokið grunnuppbyggingu og vilja vinna með hámarksstyrk og hraða.
MARKVISSAR VIÐBÆTUR
Styttri sérhæfð prógrömm sem bæta við aðalþjálfunina þegar ákveðið svæði eða eiginleiki þarf meiri athygli.
SAFNIÐ ÞRÓAST
Ný prógrömm, nýjar útgáfur og mikilvægar uppfærslur bætast sjálfkrafa við Gullaðild.
Þú þarft ekki að velja allt í einu. Byrjaðu á því prógrammi sem hentar þér núna og skiptu um áherslu þegar þú ert tilbúin/n.
VELDU LEIÐ
Rétta leiðin fer eftir því hvort þú vilt vinna með eitt afmarkað markmið eða hafa frelsi til að nýta allt prógrammasafnið yfir lengri tíma.
AFMARKAÐ MARKMIÐ
Góð leið ef þú veist nákvæmlega hvað þú vilt vinna með og þarft aðeins eitt ákveðið prógramm.
MESTA FRELSIÐ
Fyrir kylfinga sem vilja geta skipt um áherslu, nýtt fleiri prógrömm og haldið áfram að þróast allt árið.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hér finnurðu svör við algengustu spurningunum um aðgang, prógrömm, greiðslur og hvernig Gullaðild virkar.
Gullaðild veitir aðgang að öllu prógrammasafni Skúli Golf Performance á meðan aðildin er virk.
Það felur meðal annars í sér Golf Performance prógrömmin, allar 60+ útgáfur, Golf Performance Heima, Advanced-prógrömm, viðbótarprógrömm og nýtt efni sem bætist við safnið.
Já. Þegar greiðsla hefur verið staðfest færðu aðgang að prógrömmunum á þínu svæði.
Já. Þú getur skipt um áherslu eftir stöðu, markmiðum og golftímabili án þess að kaupa hvert prógramm sérstaklega.
Nei. Gullaðild veitir aðgang að prógrammasafninu á meðan aðildin er virk. Þegar aðild lýkur lokast aðgangurinn að efni sem tilheyrir Gullaðild.
Já. Allar 60+ útgáfur sem eru hluti af prógrammasafninu eru innifaldar í Gullaðild.
Ekki alltaf. Rétt röð fer eftir reynslu, styrktargrunni og markmiðum.
Fyrir marga er skynsamlegt að byrja á Grunnstyrk og fara síðan í Aflþróun og Kylfuhraða. Þú getur þó valið annað prógramm ef það passar betur við stöðu þína.
Já. Stakt prógramm hentar vel ef þú vilt vinna með eitt afmarkað markmið og þarft ekki aðgang að öllu safninu.
Gullaðild hentar betur þeim sem vilja meira frelsi, fleiri prógrömm og langtímaþjálfun.
Nei. Gullaðild er greidd mánaðarlega og þú getur sagt henni upp samkvæmt gildandi skilmálum.
TILBÚIN/N AÐ BYRJA?
Veldu prógrammið sem hentar þér núna og skiptu um áherslu þegar markmiðin breytast. Öll prógrömmin, allar útgáfur og nýtt efni eru innifalin meðan aðildin er virk.
Frítt golfpróf · 10 mínútur
Sex einföld próf sem þú gerir heima, þú þarft bara stól og bók. Þú sérð strax hvar veiku hlekkirnir eru og færð æfingu fyrir hvern þeirra.
Taka golfprófið
Vafrakökur
Við viljum sjá hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan fólk kemur og hvort auglýsingar okkar á Facebook og Instagram skila sér. Til þess þarf vafrakökur (Google Analytics og Meta Pixel). Þú ræður alveg hvort þú leyfir það — síðan virkar eins hvort sem er. Persónuverndarstefna
ÆFINGAMYNDBAND
Æfingalýsing
Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.
Róleg niðurleið
Halda spennu í bol
Varaæfingar
Bikar hnébeygjur
Split hnébeygjur
Hnébeygjur með stöng
SKILABOÐ
Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.