Hreyfigreining í Golfstöðinni

Skildu hvað er að halda aftur af sveiflunni

Hreyfigreining gefur skýra mynd af því hvernig líkaminn hreyfist og hvað hefur áhrif á sveifluna. Við greinum hreyfigetu, stjórn og álag til að finna hvað skiptir mestu máli fyrir þig.

Vandamál

Af hverju er sveiflan ekki stöðug?

Margir kylfingar upplifa að sveiflan sé breytileg, kraftur óstöðugur eða líkaminn fari að setja skorður. Oft liggur ástæðan ekki bara í tækninni heldur í því hvernig líkaminn hreyfist.

Takmörkuð hreyfigeta, ójafnvægi eða skortur á stjórn getur haft bein áhrif á sveifluna og aukið álag á ákveðna hluta líkamans.

Hreyfigreining

Hvað gerum við í hreyfigreiningu?

Við förum skipulega yfir hvernig líkaminn hreyfist og hvernig það tengist golfhreyfingunni. Með einföldum prófum fáum við skýra mynd af því hvar styrkleikar og takmarkanir liggja.

Greiningin snýst ekki bara um að finna “vandamál”, heldur að skilja hvað skiptir mestu máli fyrir þig og hvernig hægt er að bæta það með markvissri vinnu.

Hvað færðu?

Þetta færðu út úr greiningunni

Skýr mynd af hreyfigetu
Þú sérð hvernig líkaminn hreyfist og hvað skiptir mestu máli.
Tenging við sveifluna
Við tengjum líkamlega þætti beint við golfhreyfinguna.
Skýr næstu skref
Þú færð markvissan fókus í stað þess að giska.
Æfingar sem passa þér
Æfingar sem byggja á þinni stöðu og þínum markmiðum, með möguleika á að halda áfram í markvissu æfingaprógrammi.

Fyrir hverja?

Hentar sérstaklega vel ef þú:

01

Finnur að sveiflan er breytileg eða óstöðug

02

Vilt bæta hreyfigetu og stjórn

03

Ert með verki eða stífleika sem hafa áhrif á leikinn

04

Veist ekki hvar þú átt að byrja

05

Vilt tengja líkamsvinnu betur við golfið

Næsta skref

Finndu réttu leiðina fyrir þig

Sendu mér skilaboð eða bókaðu tíma beint. Við finnum hvað hentar best út frá markmiðum þínum og hvernig staðan er í dag.

ÆFINGAMYNDBAND

Æfingalýsing

Hnébeygjur á kassa

Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.

Róleg niðurleið

Halda spennu í bol

Varaæfingar

Bikar hnébeygjur

Split hnébeygjur

Hnébeygjur með stöng

SKILABOÐ

Spurning um æfinguna?

Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.