Prógrömm
Mitt svæði
PRÓGRÖMM FYRIR KYLFINGA
Hvort sem markmiðið er að minnka verki, bæta sveifluhraða eða byggja upp meiri styrk finnurðu hér prógrömm sem henta þínu markmiði og reynslu. Ef þú ert ekki viss, hjálpum við þér að velja réttu leiðina.
VELDU LEIÐ
Svaraðu nokkrum einföldum spurningum um markmið, reynslu og aldur og fáðu tillögu að réttu prógrammi.
AF HVERJU Golf performance?
Margir kylfingar gera góðar æfingar án þess að fylgja skýrri uppbyggingu. Þá vantar samhengi, stigvaxandi álag og áætlun sem flytur árangurinn yfir í golfið.
Golf Performance kerfið leiðir þig markvisst frá grunnstyrk yfir í kraft, kylfuhraða og langtímaviðhald.
Byggðu upp styrk, stöðugleika og stjórn.
Breyttu styrknum í hraðari kraftframleiðslu.
Færðu kraftinn yfir í meiri hraða í sveiflunni.
Haltu styrk, krafti og hraða yfir lengri tíma.
Ferlið
Hvert prógramm hefur skýrt hlutverk. Saman mynda þau kerfi sem byggir upp styrk, kraft og kylfuhraða í réttri röð.
Þú getur byrjað á fyrsta skrefinu eða farið beint í það prógramm sem hentar þinni stöðu.
01
Flestir byrja hér →
Byggir upp traustan grunn sem líkaminn getur nýtt í næstu skrefum.
02
Kennir líkamanum að nýta styrkinn hraðar og þróa meiri sprengikraft fyrir golfhreyfinguna.
03
Færir styrk og kraft yfir í markvissa hraðaþjálfun fyrir meiri sveifluhraða.
04
Viðheldur styrk, krafti og hraða með hagkvæmu æfingamagni yfir golftímabilið.
NÆSTA SKREF
Fylgdu allri Golf Performance leiðinni frá grunnstyrk yfir í kraft, kylfuhraða og viðhald — eða byrjaðu á einu prógrammi sem hentar markmiðinu þínu núna.
Skipulagða leiðin
Fjögur prógrömm í markvissri röð fyrir kylfinga sem vilja byggja sig upp til lengri tíma og vita alltaf hvert næsta skref er.
MARKVISS BYRJUN
Hentar ef þú ert með skýrt markmið núna og vilt byrja á því skrefi sem passar best við stöðu þína og reynslu.
ÆFÐU HVAR SEM ER
Þú þarft ekki fullbúna líkamsrækt til að byggja upp styrk, kraft og hraða fyrir golfið.
Golf Performance Heima er sex mánaða þjálfunarleið sem notar teygjur, eigin líkamsþyngd og einfaldan búnað. Prógrammið leiðir þig frá hreyfigrunni yfir í styrk, afl og kylfuhraða með skýrri og stigvaxandi framvindu.
Hentar vel fyrir þá sem æfa heima, ferðast mikið eða hafa takmarkaðan aðgang að líkamsrækt.
6 MÁNAÐA HEIMAÞJÁLFUN
Skýr og stigvaxandi leið frá hreyfigrunni yfir í styrk, afl og kylfuhraða — með teygjum, eigin líkamsþyngd og einföldum búnaði.
Hreyfigrunnur
Grunnstyrkur
Aflþróun
Kylfuhraði
Prógrammið gerir ráð fyrir teygjum, stól eða bekk, gólfplássi og dýnu; létt lóð eða ketilbjalla eru valkvæð.
FYRIR REYNDARI KYLFINGA
Advanced-prógrömm eru fyrir kylfinga sem hafa þegar byggt upp góðan styrktar- og aflgrunn og vilja vinna sérhæfðar að meiri frammistöðu.
Hér færist áherslan frá almennri uppbyggingu yfir í hámarksafl, meiri hraða og markvissari yfirfærslu yfir í golfið.
01
Advanced
Fyrir kylfinga sem hafa lokið grunnuppbyggingu og vilja þróa meiri hámarksstyrk og sprengikraft.
02
ADVANCED
Sérhæfð hraðaþjálfun fyrir kylfinga sem hafa styrk og afl til staðar og vilja færa þá getu yfir í meiri sveifluhraða.
ER ADVANCED RÉTTA LEIÐIN?
Advanced-prógrömm henta best þegar góður styrkur, líkamsstjórn og reynsla af markvissri þjálfun eru þegar til staðar.
Ef þú ert óviss er oft skynsamlegra að byrja á Grunnstyrk, Aflþróun eða Golf Performance kerfinu.
Markviss viðbót
Styttri viðbótarprógrömm fyrir kylfinga sem vilja bæta ákveðið svæði eða getu samhliða aðalprógramminu sínu.
03
Bættu hreyfigetu og stjórn fyrir betri stöðu og frjálsari hreyfingu í sveiflunni.
05
Bættu stöðugleika, snúningsstjórn og kraftflutning milli neðri og efri hluta.
60+ KYLFINGAR
Öll Golf Performance prógrömmin eru einnig í 60+ útgáfu. Sama stigvaxandi uppbygging, en æfingar, álag og framvinda eru aðlöguð að þörfum eldri kylfinga.
Gullaðild
Fyrir kylfinga sem vilja geta valið rétt prógramm á hverjum tíma án þess að kaupa hvert þeirra fyrir sig.
Með Gullaðild færðu aðgang að öllu prógrammasafni Skúli Golf Performance á meðan aðildin er virk.
Ný prógrömm og uppfærslur bætast sjálfkrafa við.
á mánuði
Greitt mánaðarlega
ALGENGAR SPURNINGAR
Hér finnurðu svör við algengustu spurningunum um prógrömmin, búnað, æfingatíðni og hvaða leið hentar best.
Ef þú ert nýr í markvissri styrktarþjálfun er Grunnstyrkur yfirleitt besti byrjunarreiturinn. Ef þú ert með góðan grunn getur Aflþróun, Kylfuhraði eða Viðhald hentað betur.
Þú getur einnig notað quizið hér efst á síðunni ef þú ert óviss um hvaða leið passar við stöðu þína og markmið.
Stakt prógramm vinnur með eitt ákveðið stig, til dæmis grunnstyrk, afl eða kylfuhraða.
Golf Performance kerfið inniheldur Grunnstyrk, Aflþróun, Kylfuhraða og Viðhald í einni markvissri röð fyrir þá sem vilja heildstæða langtímauppbyggingu.
Nei. Grunnstyrkur og Golf Performance Heima eru hönnuð þannig að hægt sé að byrja með einfaldari æfingum og byggja álagið upp stigvaxandi.
Advanced-prógrömm henta hins vegar betur kylfingum sem hafa þegar byggt upp góðan styrktar- og aflgrunn.
Flest prógrömm eru byggð í kringum tvær til þrjár æfingar á viku. Nákvæm tíðni fer eftir prógrammi, stigi og því hversu mikið þú ert að spila golf samhliða þjálfuninni.
Búnaðarþörfin fer eftir prógrammi. Hefðbundnu styrktarprógrömmin gera almennt ráð fyrir aðgangi að helstu styrktartækjum og lóðum.
Golf Performance Heima notar fyrst og fremst teygjur, eigin líkamsþyngd og einfaldan búnað. Létt lóð eða ketilbjalla geta verið gagnleg en eru ekki alltaf nauðsynleg.
Já. Golf Performance prógrömmin eru einnig fáanleg í 60+ útgáfum þar sem æfingar, álag, framvinda og endurheimt eru aðlöguð að þörfum eldri kylfinga.
Markmiðið er áfram að bæta styrk, kraft, hreyfihraða og líkamsstjórn með öruggri framvindu.
Ef verkir, stirðleiki eða fyrri meiðsli hafa áhrif á hreyfingu eða golfið er oft skynsamlegt að byrja á hreyfigreiningu eða mati áður en almennt prógramm er valið.
Prógrömm koma ekki í stað einstaklingsbundinnar greiningar eða meðferðar þegar einkenni krefjast þess.
Já. Viðbótarprógrömm eru hugsuð sem styttri og markviss vinna með ákveðin svæði eða getu, til dæmis mjaðmir, gripstyrk eða jafnvægi.
Mikilvægt er þó að heildaræfingaálagið haldist viðráðanlegt og að viðbótin trufli ekki aðalmarkmið prógrammsins.
Það fer eftir reynslu og núverandi styrktargrunni. Aflþróun og Kylfuhraði virka best þegar nægur styrkur, líkamsstjórn og reynsla eru þegar til staðar.
Ef þú ert óviss er yfirleitt öruggara að byrja á Grunnstyrk eða nota Quizið.
Eftir staðfest kaup færðu aðgang að viðkomandi prógrammi á þínu svæði. Þar finnurðu æfingar, leiðbeiningar og efni sem tilheyrir prógramminu.
Enn óviss?
Svaraðu nokkrum stuttum spurningum og fáðu tillögu að prógrammi eða hafðu samband ef þú vilt aðstoð við að velja.
Frítt golfpróf · 10 mínútur
Sex einföld próf sem þú gerir heima, þú þarft bara stól og bók. Þú sérð strax hvar veiku hlekkirnir eru og færð æfingu fyrir hvern þeirra.
Taka golfprófið
Vafrakökur
Við viljum sjá hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan fólk kemur og hvort auglýsingar okkar á Facebook og Instagram skila sér. Til þess þarf vafrakökur (Google Analytics og Meta Pixel). Þú ræður alveg hvort þú leyfir það — síðan virkar eins hvort sem er. Persónuverndarstefna
ÆFINGAMYNDBAND
Æfingalýsing
Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.
Róleg niðurleið
Halda spennu í bol
Varaæfingar
Bikar hnébeygjur
Split hnébeygjur
Hnébeygjur með stöng
SKILABOÐ
Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.