Byrjar á sama grunni og hópþjálfunin til að koma þér vel af stað.
Prógrömm
Mitt svæði
Markviss styrktar- og golfþjálfun hvar sem þú ert. Sama hugmyndafræði og hópþjálfun Golfstöðvarinnar, en æfingarnar og framvindan fylgja þér í gegnum appið. Þú mátt svo mæta á eina hópæfingu í Golfstöðinni í hverjum mánuði til að fá góð ráð frá þjálfara.
14.990 kr/mánuði
Í hverjum mánuði er sameiginleg áhersla. Hver æfing er síðan valin út frá reynslu, styrk, hreyfigetu og því sem hentar þér. Þetta fer allt í gegnum símann, án þess að þurfa að mæta á staðinn og þú æfir þegar og þar sem þér hentar.
Byrjar á sama grunni og hópþjálfunin til að koma þér vel af stað.
Þú velur úr samþykktum valkostum og þjálfari getur breytt valinu þegar þarf.
Þyngdir, æfingar, PR og saga fylgja þér áfram.
Fjarþjálfunin fylgir sömu framvindu og hópþjálfunin, mánuð fyrir mánuð. Styrkurinn er alltaf til staðar en áherslan færist smám saman yfir í meiri kraft, hraða og viðhald þegar golftímabilið nálgast.
Hreyfigeta · tækni · styrkgrunnur
Byggja styrk og góða hreyfingu
Meira álag · færri endurtekningar
Halda áfram að auka styrkinn
Þungar gæðalyftur · lægra æfingamagn
Hopp · köst · hraðari kraftframleiðsla
Sprengikraftur · snúningskraftur
Hraði · power · undirbúningur tímabils
Halda styrk og sprengikrafti án óþarfa þreytu
Tvær styrktaræfingar sem reyna á allan líkamann og úthugsuð framþróun á æfingum allt árið.
Þriðji dagurinn bætir við hreyfigetu, jafnvægi, sprengikrafti, viðbótaræfingum og þolþjálfun. Þú velur þína áherslu mánaðarlega.
Skráðu allskonar mælingar á þínu svæði. Þegar þú byrjar skráir þú upphafsstöðuna þína á Mitt svæði — hér er dæmi um hvernig framvindan getur litið út yfir tímabilið. Þú getur nýtt hvern hóptíma til að taka nokkur próf
Ný mæling bætist við þá fyrri í stað þess að skrifa yfir hana. Þannig verður hægt að sjá þróun yfir árið.
2–3 æfingar í viku, aðlagaðar að þinni getu og reynslu
Prógrammið þróast áfram, mánuð fyrir mánuð
Æfingaval sem þú getur breytt hvenær sem er
Framvinda, PR og mælingar skráð á Mitt svæði
Mættu hvenær sem er í mánuðinum í hóptíma í Golfstöðinni sem hentar þér
Sendu þjálfara spurningar hvenær sem er
Mánaðaráskrift án bindingar. Þú getur sagt upp hvenær sem er.
14.990 kr/mánuði
30.000 kr/mánuði
Kylfinga á öllum getustigum sem vilja markvissa styrktarþjálfun með golfið í huga. Prógrammið er það sama og í hópþjálfun Golfstöðvarinnar, en hver æfing er valin úr valkostum eftir þinni getu og reynslu.
Prógrammið gerir ráð fyrir grunnbúnaði — lóðum, stöng eða handlóðum, trissu og/eða teygjum. Við hverja æfingu velur þú úr nokkrum útgáfum, svo þú getur lagað hana að þeim búnaði sem þú hefur aðgang að.
Já. Veldu léttustu útgáfuna af hverri æfingu fyrsta mánuðinn og bættu smám saman í erfiðleikastigið. Þú getur breytt valinu hvenær sem er.
Þú velur 2× eða 3× í viku við skráningu. A og B eru kjarninn — styrkur fyrir allan líkamann. Þriðji dagurinn, C, bætir við hreyfigetu, jafnvægi, sprengikrafti og þoli. Hægt er að breyta þessu síðar.
Ekkert mál. Kerfið heldur utan um hvar þú ert stödd/staddur og þú heldur bara áfram þar sem frá var horfið.
Já — einn hóptími á mánuði hjá Golfstöðinni er innifalinn. Mættu þegar þér hentar og fáðu ráð frá þjálfara á staðnum.
Mánaðaráskrift sem greiðist 1. hvers mánaðar. Þegar þú skráir þig greiðir þú bara hlutfallslega fyrir þá daga sem eftir eru af mánuðinum, og svo fullt mánaðargjald frá næstu mánaðamótum. Þú getur sagt upp hvenær sem er á Aðgangssíðunni og heldur aðgangi út þann mánuð sem þegar er greiddur.
Í gegnum skilaboð í appinu — bæði í hópnum og beint á þjálfara. Þú færð svar þar. Það má líka senda á skuli@skuligolf.is
Í fjarþjálfun fylgja allir sama mánaðarprógrammi með einstaklingsbundnu æfingavali. Sérsniðin fjarþjálfun er prógramm skrifað frá grunni fyrir þig — út frá markmiðum, meiðslasögu og aðstæðum — með eftirfylgd þjálfara og TPI-mælingu á 3 mánaða fresti.
Þú færð aðgang að Mitt svæði um leið og skráning er staðfest — prógrammið byrjar strax.
Skrá mig →Frítt golfpróf · 10 mínútur
Sex einföld próf sem þú gerir heima, þú þarft bara stól og bók. Þú sérð strax hvar veiku hlekkirnir eru og færð æfingu fyrir hvern þeirra.
Taka golfprófið
Vafrakökur
Við viljum sjá hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan fólk kemur og hvort auglýsingar okkar á Facebook og Instagram skila sér. Til þess þarf vafrakökur (Google Analytics og Meta Pixel). Þú ræður alveg hvort þú leyfir það — síðan virkar eins hvort sem er. Persónuverndarstefna
ÆFINGAMYNDBAND
Æfingalýsing
Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.
Róleg niðurleið
Halda spennu í bol
Varaæfingar
Bikar hnébeygjur
Split hnébeygjur
Hnébeygjur með stöng
SKILABOÐ
Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.