6 mánaða heimaprógramm

Heimaþjálfun fyrir kylfinga

Styrktarprógramm fyrir kylfinga sem vilja byggja upp styrk, sprengikraft og meiri sveifluhraða — án þess að þurfa að æfa í líkamsrækt.

2–3 æfingar í viku

Lágmarks búnaður

Styrkur → sprengikraftur → hraði

Hentar heima og á ferðinni

Af hverju heimaprógramm?

Þú þarft ekki líkamsrækt til að bæta líkamlega getu fyrir golf

Margir kylfingar vilja bæta styrk, hreyfigetu og sveifluhraða en hafa ekki alltaf aðgang að líkamsrækt eða tíma fyrir langar æfingar.

Heimaþjálfunarprógrammið er byggt fyrir kylfinga sem vilja æfa markvisst með lágmarks búnaði — heima, á ferðinni eða samhliða golfi.

Prógrammið byggir upp styrk, stöðugleika og sprengikraft í stigum svo líkaminn verði betur í stakk búinn til að framleiða kraft og flytja hann yfir í golfsveifluna.

Þú færð

Skýrt plan sem leiðir þig áfram

Styrkur fyrir golf

Byggir upp neðri líkama, kjarna og efri líkama með æfingum sem styðja kraft og stöðugleika í sveiflunni.

Meiri hreyfigeta

Æfingar sem hjálpa líkamanum að hreyfast frjálsar og auðvelda betri snúning og hleðslu í sveiflunni.

Heima eða á ferðinni

Þú þarft ekki líkamsrækt. Prógrammið er hannað þannig að þú getir æft nánast hvar sem er.

Skýr framvinda

Prógrammið þróast í stigum svo þú getir byggt upp getu jafnt og örugglega án þess að ofgera líkamanum.

Uppbygging prógrammsins

Byggt upp í fjórum stigum

Prógrammið þróar líkamlega getu fyrir golf í rökréttri röð — frá grunnstjórn og styrk yfir í meiri kraft og hraða.

01

Hreyfigrunnur

Byggir upp stjórn, stöðugleika og grunnstyrk áður en álag eykst.

02

Grunnstyrkur

Þróar styrk í helstu hreyfimynstrum líkamans með áherslu á golf.

03

Aflþróun

Breytir styrk yfir í sprengikraft og hraðari kraftframleiðslu.

04

Kylfuhraði

Hámarkar hraða og flytur líkamlega getu yfir í meiri sveifluhraða.

Hvernig virkar þetta

Einfalt að fylgja eftir

Prógrammið er byggt þannig að þú getir æft markvisst án flókins búnaðar eða langra æfinga.

01

Velur þitt tempo

Flestum hentar að æfa 2–3 sinnum í viku samhliða golfi og daglegu lífi.

02

Byggir grunninn

Fyrstu stigin þróa styrk, stöðugleika og stjórn í helstu hreyfimynstrum líkamans.

03

Þróar kraft og hraða

Æfingarnar verða síðan gerðar með meiri sprengikraft og áherslu á hraða í framkvæmd.

04

Færist yfir í golfið

Markmiðið er meiri kraftur, betri hreyfing og aukinn sveifluhraði á vellinum.

Er þetta fyrir þig?

Hverjum hentar prógrammið best?

Heimaþjálfun er hannað fyrir kylfinga sem vilja bæta líkamlega getu sína á einfaldan og raunhæfan hátt.

Hentar vel ef þú…

Vilt bæta styrk og hreyfigetu fyrir golf

Hefur takmarkaðan tíma til æfinga

Vilt æfa heima eða á ferðinni

Vilt auka sveifluhraða og kraft

Vilt skýrt prógramm með framvindu

Hentar ekki ef þú...

Ert að leita að bodybuilding prógrammi

Vilt eingöngu mjög þungar lyftingar

Vilt mjög langar æfingar oft í viku

Ert ekki tilbúinn að æfa reglulega

Þú þarft ekki fullkomnar aðstæður til að bæta líkamlega getu fyrir golf. Regluleg og markviss þjálfun skiptir mestu máli.

ALGENGAR SPURNINGAR

ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR

Þarf ég að vera í góðu formi áður en ég byrja?

Nei. Prógrammið er byggt upp þannig að þú getir byrjað á þínu eigin getustigi og unnið þig áfram með skýrri framvindu.

Nei. Þetta prógramm er sérstaklega hannað fyrir heimaþjálfun með lágmarks búnaði.

Ef þú ert með viðvarandi bak- eða axlarverki er gott að fá mat áður en þú byrjar. Í sjúkraþjálfun er hægt að meta hvað veldur einkennunum og aðlaga æfingar að þinni stöðu.

Flestar æfingar taka um 30–45 mínútur og eru hannaðar til að passa inn í venjulegan dag.

Nei. Prógrammið hentar bæði byrjendum og lengra komnum kylfingum sem vilja bæta styrk, hreyfigetu og líkamsstjórn.

Flestir finna mun á hreyfingu, stöðugleika og líkamskontrolli innan fyrstu vikna ef þeir fylgja prógramminu reglulega.

Já. Þú færð aðgang strax eftir kaup og getur byrjað sama dag.

Byrjaðu hér

heima prógramm fyrir golfara

Byggðu upp sterkari grunn, meiri stöðugleika og betri hreyfingu með skipulögðu prógrammi sem passar inn í venjulegt líf.

24.900

Eingreiðsla • Fullur aðgangur

Viltu æfa í rækt?

Prógrammaröðin
í heild

Fáðu aðgang að öllum prógrömmum, framvindu og næstu stigum kerfisins á einum stað.

90.000

4 prógrömm • 12+ mánuðir • lægra verð en stök kaup

ÆFINGAMYNDBAND

Æfingalýsing

Hnébeygjur á kassa

Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.

Róleg niðurleið

Halda spennu í bol

Varaæfingar

Bikar hnébeygjur

Split hnébeygjur

Hnébeygjur með stöng

SKILABOÐ

Spurning um æfinguna?

Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.