Hámarksafl · FRAMHALDSPRÓGRAMM · 12 VIKUR

BYGGÐU MEIRI STYRK. NOTAÐU HANN HRAÐAR.

Hámarksafl er fyrir kylfinga sem hafa þegar byggt upp góðan styrktar- og aflgrunn og vilja þróa meiri hámarksstyrk, sprengikraft og kraftframleiðslu.

12 vikur

3 æfingar á viku

Fyrir reynda í styrktarþjálfun

Hámarksstyrkur · afl · sprengikraftur

AF HVERJU HÁMARKSAFL?

ÞÚ ERT KOMINN MEÐ GRUNNINN. NÚ GETURÐU BYGGT OFAN Á HANN.

Þegar góður styrkur og grunnur í afli eru þegar til staðar þarf meira álag til að halda áfram að bæta líkamlega getu.

Hámarksafl byggir ofan á þann grunn með þyngri lyftingum, kröftugri æfingum og markvissri blöndu af hámarksstyrk og hröðugri kraftframleiðslu.

Þú færð

Byggðu MEIRI LÍKAMLEGA GETU

Hámarksafl sameinar þunga styrktarþjálfun og hraða kraftvinnu til að þróa meiri styrk, sprengikraft og getu til að framleiða mikinn kraft á stuttum tíma.

MEIRI HÁMARKSSTYRK

Þungar lyftingar auka getuna til að framleiða mikinn kraft þegar á reynir.

MEIRI SPRENGIKRAFT

Hopp, köst og hraðar styrktaræfingar þjálfa líkamann í að framleiða kraft á styttri tíma.

12 VIKNA FRAMVINDA

Álag og ákefð þróast markvisst yfir þrjú stig með skýru framhaldi frá viku til viku.

3 ÆFINGAR Á VIKU

Skipulögð blanda af styrk og afli með nægum tíma fyrir endurheimt milli æfinga.

Hvernig virkar þetta

MEIRI KRAFTUR. MEIRI GETA.

Markmiðið er ekki bara að verða sterkari. Hámarksafl þjálfar þig í að byggja upp mikinn kraft og nýta hann hratt.

01

AUKA HÁMARKSSTYRK

Þungar grunnæfingar byggja upp meiri getu til að framleiða kraft.

02

ÞRÓA SPRENGIKRAFT

Hopp, köst og hraðar styrktaræfingar kenna líkamanum að nýta kraftinn hratt.

03

TENGJA STYRK OG HRAÐA

Þung og hröð vinna er sett saman þannig að aukinn styrkur skili sér í meiri kraftframleiðslu.

04

UNDIRBÚA MEIRI HRAÐA

Öflugri líkamlegur grunnur undirbýr þig fyrir sérhæfðari kylfuhraðaþjálfun.

Fyrir hverja?

FYRIR KYLFINGA SEM ERU TILBÚNIR Í MEIRA ÁLAG.

Hámarksafl hentar best kylfingum sem hafa reynslu af styrktarþjálfun, góða stjórn á helstu grunnæfingum og vilja ýta líkamlegri getu lengra.

01

GÓÐUR STYRKTARGRUNNUR

Þú hefur þegar byggt upp styrk og þekkir helstu grunnæfingar.

02

REYNSLA AF AFLÞJÁLFUN

Þú hefur reynslu af hoppum, köstum eða öðrum hraðari kraftæfingum.

03

MARKMIÐ UM MEIRI GETU

Þú vilt þróa meiri hámarksstyrk og sprengikraft en almenn grunnþjálfun gefur.

04

NÆSTA ÞREP

Þú ert tilbúinn að vinna með meira álag og meiri ákefð.

PRÓGRAMMARÖÐIN

ÞÚ ERT Á FRAMHALDSLEIÐINNI

Hámarksafl er framhaldsprógramm fyrir þá sem vilja fara lengra í styrk og krafti. Það byggir ofan á Aflþróun og getur komið á undan sérhæfðari hraðaþjálfun.

01

Grunnstyrkur

✓ Lokið / fyrra skref

02

Aflþróun

Breyta styrk í hraðan kraft
✓ Fyrra skref

03

Hámarksafl

Hámarksstyrkur + sprengikraftur

04

Hámarkshraði

Nýta kraftinn við meiri hraða
Næsta framhaldsþrep

Kylfuhraði og Viðhald eru áfram hluti af hefðbundnu prógrammaröðinni. Hámarksafl og Hámarkshraði eru valfrjáls framhaldsþrep fyrir þá sem vilja ýta frammistöðunni lengra.

FYRIR HVERJA?

PASSAR hámarksafl FYRIR ÞIG?

Hámarksafl er fyrir þig ef góður styrktargrunnur er þegar til staðar og þú vilt meira álag, meiri kraft og meiri hámarksgetu.

Best fyrir

Þig sem hefur lokið Aflþróun eða sambærilegri þjálfun

Þig sem hefur reynslu af þungum grunnæfingum

Þig sem vilt auka hámarksstyrk og sprengikraft

Þig sem vilt undirbúa líkamann fyrir meiri hraða

Ekki best ef

Þú ert nýr í styrktarþjálfun

Þú ert enn að læra helstu grunnæfingar

Þú vilt fyrst og fremst byggja upp almennan styrktargrunn

Þú þarft að byrja af minni ákefð

ALGENGAR SPURNINGAR

ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR

Hversu oft á viku þarf ég að æfa?

Prógrammið er sett upp með þremur æfingum á viku. Vegna meiri ákefðar er mikilvægt að gefa líkamanum nægan tíma til að jafna sig milli æfinga.

Ekki endilega, en þú ættir að hafa sambærilegan styrktar- og aflgrunn. Hámarksafl er ekki hugsað sem fyrsta styrktarprógrammið þitt.

Nei. Mikilvægara er að þú hafir reynslu af styrktarþjálfun, góða stjórn á helstu æfingum og getir unnið örugglega með stigvaxandi álag.

Já. Prógrammið gerir ráð fyrir hefðbundnum styrktarbúnaði eins og stöng, handlóðum og kapalvélum.

Ef markmiðið er að færa aukinn kraft yfir í meiri hraða er Kylfuhraði eða Hámarkshraði rökrétt næsta skref. Viðhald tekur síðan við þegar áherslan færist yfir á að halda getu yfir golftímabilið.

Tilbúin/n í næsta þrep?

BYGGÐU MEIRI KRAFT. SJÁÐU HVAÐ LÍKAMINN GETUR.

12 vikna framhaldsprógramm fyrir kylfinga sem vilja þróa hámarksstyrk, sprengikraft og meiri líkamlega getu.

24.990

ÆFINGAMYNDBAND

Æfingalýsing

Hnébeygjur á kassa

Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.

Róleg niðurleið

Halda spennu í bol

Varaæfingar

Bikar hnébeygjur

Split hnébeygjur

Hnébeygjur með stöng

SKILABOÐ

Spurning um æfinguna?

Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.