Skúli Golf Performance

UM

Ég hjálpa kylfingum að hreyfa sig betur, minnka verki og ná meiri afköstum á golfvellinum með golfmiðaðri sjúkraþjálfun og styrktarþjálfun.

Af hverju golf performance?

Ég fór „all in“ aftur í golfið eftir að hafa klárað nám, stofnað fjölskyldu og sinnt öðrum áhugamálum í tvo áratugi og sá að það eru mörg tækfæri til að bæta golfið landans með því að efla líkamlega þáttinn. Ég stofnaði Skúli Golf Performance með eitt markmið í huga – að hjálpa kylfingum að spila betur, hreyfa sig betur og njóta golfsins lengur. Með bakgrunn í sjúkraþjálfun, styrktarþjálfun og golfi sameina ég golfhreyfigreiningu, meðferð og markvissa þjálfun svo þú getir aukið kylfuhraða, bætt hreyfigæði og dregið úr meiðslum.

Í dag starfa ég í nánu samstarfi við Golfstöðina þar sem markmiðið er að tengja saman sjúkraþjálfun, styrktarþjálfun og golfþjálfun á einum stað. Þannig geta kylfingar fengið heildstæða þjónustu sem styður bæði heilsu og frammistöðu.

Golf sérhæfing

Golf er íþrótt þar sem líkaminn hefur bein áhrif á sveifluna. Þess vegna byggist öll ráðgjöf og þjálfun á því hvernig þú hreyfir þig, hvaða takmarkanir eru til staðar og hvernig hægt er að bæta frammistöðu án þess að breyta sveiflunni að óþörfu.

Sjúkraþjálfun

Sem löggiltur sjúkraþjálfari legg ég áherslu á nákvæma skoðun, greiningu og einstaklingsmiðaða meðferð. Hvort sem markmiðið er að losna við verki eða komast aftur á golfvöllinn eftir meiðsli er meðferðin alltaf byggð á bestu þekkingu hverju sinni.

Styrktarþjálfun

Markviss styrktarþjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin til að bæta kylfuhraða, lengd og stöðugleika. Æfingarnar eru hannaðar fyrir kylfinga og taka mið af getu, markmiðum og þeim búnaði sem þú hefur aðgang að.

Þjálfarinn

Skúli Pálmason

Ég er löggiltur sjúkraþjálfari og styrktarþjálfari með sérstakan áhuga á golfi og þeirri líkamlegu hlið sem hefur áhrif á frammistöðu. Markmið mitt er að hjálpa kylfingum að hreyfa sig betur, slá lengra og njóta golfsins án verkja með faglegri skoðun, markvissri þjálfun og einstaklingsmiðaðri nálgun.

Samhliða Skúli Golf Performance starfa ég með Golfstöðinni að þróun þjónustu og æfingakerfa fyrir kylfinga á öllum getustigum.

Menntun og reynsla

Löggiltur sjúkraþjálfari

HÁSKÓLI ÍSLANDS • B.SC. Í SJÚKRAÞJÁLFUN

Útskrifaður sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands með áherslu á greiningu, endurhæfingu og meðferð stoðkerfisvandamála. Starfa daglega með einstaklingum sem vilja minnka verki, bæta hreyfigæði og auka líkamlega getu – bæði innan sem utan golfvallar.

Einka- og fjarþjálfari síðan 2010

ÍAK • EINKAÞJÁLFARI

Menntun og mikil reynsla í styrktar- og þolþjálfun með áherslu á hreyfigæði, afkastagetu og langtíma framfarir. Þjálfunin er alltaf einstaklingsmiðuð og byggð á markmiðum hvers og eins.

TPI GOLF PERFORMANCE

TPI LEVEL 1 • POWER LEVEL 2 • MEDICAL LEVEL 2

Þrjár sérhæfðar TPI-vottanir sem sameina golf, hreyfigreiningu, sjúkraþjálfun og styrktarþjálfun. Þær nýtast til að greina hvernig líkamleg geta hefur áhrif á golfsveifluna og hvernig markviss þjálfun og meðferð getur aukið kylfuhraða, bætt hreyfigæði og dregið úr meiðslum.

Tilbúinn að byrja?

NÆSTA SKREF ER ÞITT

Hvort sem markmiðið er að losna við verki, bæta sveifluna eða slá boltann lengra, þá er fyrsta skrefið að byrja með skýra áætlun.

ÆFINGAMYNDBAND

Æfingalýsing

Hnébeygjur á kassa

Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.

Róleg niðurleið

Halda spennu í bol

Varaæfingar

Bikar hnébeygjur

Split hnébeygjur

Hnébeygjur með stöng

SKILABOÐ

Spurning um æfinguna?

Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.