1. Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur (cookies) eru litlar textaskrár sem vistast í vafranum þínum þegar þú heimsækir vefsíðu. Þær hjálpa meðal annars til við að muna stillingar, halda utan um innskráningu og bæta virkni vefsins.
2. Nauðsynlegar vafrakökur
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefurinn virki. Þær eru settar án samþykkis, enda væri þjónustan óstarfhæf án þeirra, og þær eru ekki notaðar til að fylgjast með þér milli vefsvæða.
- Innskráning og notendaaðgangur.
- Karfa og kaupferli.
- Öryggi og vörn gegn misnotkun.
- Stillingar og virkni vefsins.
Við geymum einnig tvö atriði í vafranum þínum sem eru ekki eiginlegar vafrakökur en gegna sama hlutverki: svarið þitt við vafrakökuborðanum, sem er geymt í 12 mánuði, og upplýsingu um að þú hafir séð skráningarglugga svo hann birtist þér ekki aftur og aftur. Hvorugt er notað til mælinga og hvorugt er sent frá tækinu þínu.
3. Mælingar — aðeins með samþykki
Við notum Google Analytics 4 til að sjá hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan gestir koma og í hvaða tækjum. Þetta hjálpar okkur að bæta vefinn.
Þessar vafrakökur eru aðeins settar ef þú ýtir á „Leyfa“ í vafrakökuborðanum. Fyrr er engin Google-skrifta hlaðin og engin gögn send.
| Vafrakaka | Tilgangur | Líftími |
|---|---|---|
_ga |
Aðgreinir gesti | 2 ár |
_ga_J4X20V00P5 |
Heldur utan um heimsókn | 2 ár |
Vinnsluaðili er Google Ireland Limited. Upplýsingarnar teljast persónuupplýsingar þótt þær séu ekki tengdar nafni þínu. IP-tölur eru styttar, gögnin kunna að vera flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið á grundvelli staðlaðra samningsskilmála Evrópusambandsins, og þeim er eytt eftir 14 mánuði.
Við notum líka Meta Pixel til að mæla hvort auglýsingar okkar á Facebook og Instagram skila sér, t.d. hvort fólk sem sá auglýsingu opnaði eða kláraði golfprófið. Pixillinn er sömuleiðis aðeins hlaðinn ef þú ýtir á „Leyfa“. Fyrr er engin skrifta frá Meta hlaðin og engin gögn send.
| Vafrakaka | Tilgangur | Líftími |
|---|---|---|
_fbp |
Aðgreinir heimsóknir vegna mælinga á auglýsingum | 90 dagar |
_fbc |
Geymir hvaða auglýsing var smellt á, ef komið er af auglýsingu | 90 dagar |
Vinnsluaðili er Meta Platforms Ireland Limited. Gögnin kunna að vera flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið á grundvelli staðlaðra samningsskilmála Evrópusambandsins.
4. Þriðju aðilar
Vefurinn notar þjónustur frá þriðju aðilum sem kunna að setja sínar eigin vafrakökur þegar þjónustan er notuð — einkum WooCommerce og WooCommerce Subscriptions vegna verslunar og áskrifta, og greiðslumiðil í kaupferlinu.
5. Hvernig stjórna ég vafrakökum?
Þegar þú kemur fyrst á vefinn birtist borði þar sem þú velur hvort þú leyfir mælingakökur. Þú getur hafnað þeim, og vefurinn virkar nákvæmlega eins eftir sem áður.
Neðst á hverri síðu er takkinn „Vafrakökustillingar“. Þar getur þú breytt svarinu hvenær sem er, hvort sem þú samþykktir eða hafnaðir áður.
Þú getur einnig breytt stillingum vafrans þíns til að hafna eða eyða vafrakökum. Athugaðu þó að ef nauðsynlegar vafrakökur eru gerðar óvirkar gætu innskráning og kaupferli hætt að virka.
6. Breytingar á stefnunni
Skúli Golf áskilur sér rétt til að uppfæra þessa vafrakökustefnu ef breytingar verða á þjónustunni, tæknilausnum eða gildandi lögum.
7. Samband
Ef þú hefur spurningar um notkun vafrakaka geturðu haft samband á skuli@skuligolf.is.
Síðast uppfært: 29. október 2026