5 styrktaræfingar sem flestir kylfingar geta haft gagn af

Það eru engar töfra æfingar fyrir golf, en ákveðnar styrktaræfingar geta hjálpað flestum kylfingum að byggja upp kraft, bæta stöðugleika og þola betur álagið sem fylgir því að spila golf.

Margir kylfingar velta fyrir sér hvaða styrktaræfingar fyrir golf séu bestar. Svarið er að það eru engar töfraæfingar. Hins vegar eru ákveðnar æfingar sem geta hjálpað flestum kylfingum að byggja upp styrk, bæta stöðugleika og þróa betri hreyfigetu.

Markmiðið er ekki að verða eins og keppandi í vaxtarrækt. Markmiðið er að byggja upp líkama sem getur framleitt kraft, hreyfst vel og þolað álagið sem fylgir golfinu.

1. Hnébeygjur

Fætur og mjaðmir eru undirstaða kraftframleiðslu í golfsveiflunni. Hnébeygjur byggja upp styrk í neðri líkamanum og bæta getu til að framleiða kraft frá jörðinni.

Ávinningurinn getur meðal annars verið:

  • Meiri styrkur í fótum og mjöðmum
  • Betri stöðugleiki í sveiflunni
  • Bætt jafnvægi
  • Meiri geta til að framleiða kraft

2. Hip Thrust

Rassvöðvarnir gegna mikilvægu hlutverki í golfsveiflunni. Þeir hjálpa til við að mynda kraft og veita stöðugleika í gegnum mjaðmir og mjóbak.

Hip thrust er einföld en mjög áhrifarík æfing til að styrkja þetta svæði.

  • Byggir upp styrk í rassvöðvum
  • Bætir kraft í mjöðmum
  • Getur minnkað óþarfa álag á mjóbak
  • Styður við hraðari og stöðugri sveiflu

3. Róður

Róður hjálpar til við að byggja upp stöðugleika og stuðlar að betri líkamsstöðu bæði í æfingum og á vellinum.

  • Styrkir efra bak
  • Bætir stjórn á herðablöðum
  • Styður við axlarheilsu
  • Getur hjálpað til við að viðhalda góðri líkamsstöðu

4. Split hnébeygjur

Golf er í raun röð af einhliða hreyfingum þar sem líkaminn þarf stöðugt að stjórna þyngdarfærslu frá einum fæti yfir á hinn.

Split hnébeygjur þjálfa styrk, jafnvægi og stjórn í stöðu sem líkist þeim kröfum sem golfið setur á líkamann.

  • Byggir upp styrk í öðrum fæti í einu
  • Bætir jafnvægi
  • Getur hjálpað til við að minnka hliðarmun
  • Þjálfar stjórn og stöðugleika

5. Bóndagöngur

Þessi æfing lítur einföld út en getur verið gríðarlega gagnleg fyrir kylfinga. Bóndaganga krefst góðrar líkamsstöðu, stöðugleika og stjórn á öllum líkamanum.

  • Byggir upp gripstyrk
  • Styrkir kjarna og búk
  • Bætir líkamsstöðu
  • Þjálfar stöðugleika í göngu og hreyfingu



📚 Það sem rannsóknir sýna

  • Styrktar- og kraftþjálfun getur bætt mælanlega þætti í golfi, þar á meðal kylfuhraða og högglengd, hjá mörgum kylfingum.
  • Styrkur í neðri líkama og bol er talinn mikilvægur fyrir getu til að framleiða og flytja kraft í gegnum golfsveifluna.
  • Æfingar sem byggja upp stöðugleika, jafnvægi og stjórn geta hjálpað kylfingum að þola betur endurtekið álag.
  • Vel uppbyggð styrktarþjálfun getur verið gagnleg bæði fyrir frammistöðu og langtímaheilsu kylfinga.

Þarf ég að gera allar æfingarnar?

Ekki endilega. Æfingaval fer eftir markmiðum, reynslu og núverandi getu. Fyrir flesta kylfinga getur þó verið skynsamlegt að hafa æfingar sem:

  • Byggja upp styrk í neðri líkamanum
  • Styrkja kjarna og efra bak
  • Bæta jafnvægi og stjórn
  • Viðhalda góðri hreyfigetu

Byggðu upp líkama sem styður golfið þitt

Þú þarft ekki tugi æfinga til að finna mun. Nokkrar vel valdar æfingar sem eru framkvæmdar reglulega geta skipt miklu máli fyrir bæði frammistöðu og vellíðan.

Markmiðið er ekki bara að verða sterkari. Markmiðið er að byggja upp líkama sem hreyfist betur, þolir meira álag og getur hjálpað þér að njóta golfsins enn betur.

Í Skúli Golf Performance finnur þú markviss æfingaprógrömm fyrir kylfinga á öllum aldri og getustigum, hvort sem markmiðið er meiri lengd, minni verkir eða betri líkamleg geta fyrir golfið.

Heimildir

  1. Ehlert A. The effects of strength and conditioning interventions on golf performance: A systematic review. Journal of Sports Sciences. 2020. [Abstract Only]
  2. Evans K, Tuttle N. Improving performance in golf: current research and implications from a clinical perspective. Brazilian Journal of Physical Therapy. 2015. [PMC Full Text]

Frekara lesefni

Deildu með öðrum kylfingi

ÆFINGAMYNDBAND

Æfingalýsing

Hnébeygjur á kassa

Settu þig rólega niður á kassann með stjórn og haltu góðri spennu í bolnum allan tímann.

Róleg niðurleið

Halda spennu í bol

Varaæfingar

Bikar hnébeygjur

Split hnébeygjur

Hnébeygjur með stöng

SKILABOÐ

Spurning um æfinguna?

Sendu mér skilaboð ef eitthvað er óskýrt eða ef þú vilt feedback á framkvæmdina.