Skúli Golf Performance · S Þjálfun ehf.

Eyða aðganginum þínum

Þú getur eytt aðganginum þínum og öllum gögnum hans sjálf/ur, bæði í appinu og á vefnum:

  1. Skráðu þig inn.
  2. Opnaðu Aðgangur (í appinu: Meira → Aðgangur).
  3. Neðst: Eyða aðganginum mínum, sláðu inn lykilorðið og staðfestu.

Skrá inn og eyða aðgangi

Hvað er eytt? Æfingaskráningar, met, mælingar og próf, inntökuform (þ.m.t. heilsufarsupplýsingar), skilaboð, prófílmynd og stillingar, strax og varanlega.

Hvað er geymt? Pantanir og reikningar úr vefversluninni eru geymd eins lengi og bókhaldslög krefjast (allt að 7 ár), án tengingar við aðganginn.

Kemstu ekki inn? Sendu beiðni frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á til skuli@skuligolf.is og við eyðum honum innan 30 daga.

Persónuverndarstefna · skuligolf.is